Sensa hefur gert samstarfssamning við Bergið headspace með það að markmiði að styðja við mikilvæga starfsemi Bergsins og styrkja stafrænt umhverfi samtakanna til framtíðar.
Sem hluti af samstarfinu hefur Sensa aðstoðað Bergið við innleiðingu á nútímalegu Microsoft 365 vinnuumhverfi sem eykur öryggi upplýsinga, einfaldar samvinnu starfsfólks og skapar traustan tæknilegan grunn undir áframhaldandi vöxt starfseminnar.
Við erum afar þakklát fyrir stuðning Sensa og þá faglegu ráðgjöf sem fyrirtækið hefur veitt okkur í gegnum innleiðingarferlið. Fyrir starfsemi eins og Bergið, sem sinnir viðkvæmri og mikilvægri þjónustu við ungt fólk um allt land, skiptir öruggt og skilvirkt vinnuumhverfi miklu máli.
