Ókeypis ráðgjöf fyrir ungt fólk
Ertu að glíma við kvíða, vanlíðan, einmanaleika, erfið samskipti eða eitthvað annað sem liggur þér á hjarta? Hjá Berginu headspace fær ungt fólk á aldrinum 12–25 ára ókeypis ráðgjöf og stuðning frá fagfólki. Þú þarft enga tilvísun og ekkert vandamál er of lítið til að ræða. Við erum með þjónustu víða um land og bjóðum einnig fjarviðtöl.

Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára. Með fræðslu og stuðningi finnum við leiðir í sameiningu að bættri líðan og eflum virkni ungmenna í samfélaginu. Þjónustan miðar að því að efla þátttöku og þekkingu ungmenna sem og að auka tengsl þeirra við samfélagið. Ráðgjöfin er í boði í Reykjavík, Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi, Mosfellsbæ, Akureyri, Grenivík og svo er í fjarþjónusta um allt land - fyrir þau sem komast ekki á staðinn
Algengar spurningar
Hverjir geta fengið ókeypis ráðgjöf hjá Berginu?
Hvað kostar þjónustan?
Get ég fengið ráðgjöf þótt vandamálið mitt sé ekki alvarlegt?
Hvernig sæki ég um þjónustu í Berginu?
Get ég fengið ráðgjöf án tilvísunar?
Hvar get ég fengið ókeypis hjálp við kvíða?
Er trúnaður í ráðgjöf hjá Berginu?
Hvern tala ég við ef ég mæti í Bergið?
Get ég fengið ráðgjöf á netinu?
Hvar er Bergið staðsett?
Hvenær er Bergið opið?
Má ég bóka ráðgjöf fyrir barnið mitt?
Má ég koma ef ég er 11 ára?
Ég mætti ekki í tíman minn, má ég koma aftur?
Hvernig virkar skráning í þjónustu hjá Berginu?

Smelltu á hnappinn „óska eftir þjónustu“

Fylltu út formið

Skráðu þig hjá Kara connect

Ráðgjafi verður í sambandi við þig og þið finnið tíma sem hentar.
Ef þú ert í hættu eða neyðin er mikil, hringdu í 112 eða í hjálparsíma Rauða krossins 1717