Til baka í fréttirnar

07/09/2026

Styrktarmót Mudslinger á Akureyri

Nýju bestu vinir okkar í Mudslinger á Akureyri héldu mót til styrktar Berginu 💚

Við þökkum þeim innilega fyrir að standa fyrir þessum frábæra viðburði og öllum sem tóku þátt og lögðu sitt af mörkum. Allur ágóði af mótinu rennur beint í starfsemi Bergsins á Akureyri, þar sem nú er opið fjóra daga vikunnar.

Bergið er frjáls félagasamtök sem bjóða ungu fólki á aldrinum 12–25 ára gjaldfrjálsa ráðgjöf. Styrkur sem þessi skiptir okkur gríðarlega miklu máli og hjálpar okkur að vera áfram til staðar fyrir ungt fólk þegar það þarf á stuðningi að halda.

Ef þig vantar einhvern til að tala við, eða þekkir einhvern sem gæti nýtt sér þjónustuna, er hægt að óska eftir tíma á bergid.is og við finnum með þér tíma.

Takk, Mudslinger, fyrir að standa með ungu fólki á Akureyri! 💚