20/10/2026
Bergið hlýtur 2,5 milljóna króna styrk til að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni

Bergið headspace er meðal þeirra 13 verkefna sem hlutu styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis við úthlutun sjóðsins í dag, 20. október. Bergið hlaut 2,5 milljónir króna, sem er meðal hæstu styrkja úthlutunarinnar, til verkefnisins „Bergið nær lengra“.
Styrkurinn verður nýttur til að þróa og efla aðgengilega geðheilbrigðisþjónustu fyrir ungt fólk á Austurlandi og Vestfjörðum. Verkefnið er liður í þeirri vegferð Bergsins að tryggja að ungmenni á aldrinum 12–25 ára geti leitað sér stuðnings óháð því hvar á landinu þau búa.
Geðheilbrigðisstuðningur á ekki að ráðast af póstnúmeri
Frá stofnun Bergsins hefur markmiðið verið skýrt: Að ungt fólk geti fengið gjaldfrjálsan, faglegan stuðning á eigin forsendum, án tilvísunar og án langrar biðar. Á undanförnum árum hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt og þjónustan náð til sífellt fleiri sveitarfélaga.
Með verkefninu „Bergið nær lengra“ verður byggt á þeirri reynslu sem þegar hefur skapast af þjónustu Bergsins á landsbyggðinni, meðal annars á Akureyri og Grenivík. Markmiðið er að þróa sjálfbært þjónustulíkan þar sem regluleg viðvera fagfólks á svæðunum fer saman við samfellda fjarþjónustu á milli heimsókna.
Bergið hefur nú þegar hafið uppbyggingu þjónustu á Vestfjörðum og styrkurinn skapar mikilvæg tækifæri til að þróa starfsemina enn frekar og leggja grunn að sambærilegri þjónustu á Austurlandi.
Mikilvæg viðurkenning á starfi Bergsins
Á árinu 2025 leituðu 1.096 ungmenni til Bergsins og voru veitt 4.617 ráðgjafarviðtöl. Þörfin fyrir aðgengilegan stuðning er mikil og reynslan sýnir að oft þarf ekki mörg viðtöl til að hjálpa ungu fólki að takast á við áskoranir áður en vandinn verður umfangsmeiri.
„Við erum ótrúlega þakklát fyrir þennan styrk og það traust sem okkur er sýnt. Við höfum lengi lagt áherslu á að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu eigi ekki að ráðast af búsetu. Það skiptir máli að ungt fólk geti fengið stuðning í sínu nærumhverfi, áður en vandinn verður stærri. Þessi styrkur hjálpar okkur að taka enn eitt mikilvægt skref í þá átt,“ segir Rut Sigurðardóttir, fagstjóri Bergsins.
Metfjöldi umsókna í ár
Alls bárust Styrktarsjóði geðheilbrigðis 107 umsóknir að fjárhæð yfir 260 milljónir króna, sem er metfjöldi umsókna. Þrettán verkefni hlutu styrk að þessu sinni.
Bergið óskar öðrum styrkþegum innilega til hamingju og þakkar Styrktarsjóði geðheilbrigðis fyrir mikilvægan stuðning við geðheilbrigðismál á Íslandi.
Því stuðningur á að vera til staðar þegar hans er þörf – óháð póstnúmeri.