Til baka í fréttirnar

05/08/2026

Einvígið á Nesinu - til styrktar Berginu

Einvígið á Nesinu er orðið einn af skemmtilegustu golfviðburðum sumarsins. Á mánudaginn var allt eins og best verður á kosið – frábært veður, glæsilegur golfvöllur, hörkukeppni og frábær stemning með hundruðum áhorfenda.

Við hjá BERGINU headspace erum einstaklega þakklát fyrir að vera hluti af þessum glæsilega degi. Í mótslok afhenti Arion banki BERGINU headspace veglega styrktargjöf að upphæð 1.000.000 kr.

Slíkur stuðningur skiptir okkur gríðarlegu máli og gerir okkur kleift að halda áfram að veita ungu fólki ókeypis, aðgengilega ráðgjöf þegar mest á reynir.

Takk fyrir að standa með BERGINU og ungu fólki. 💚