Til baka í fréttirnar

28/08/2026

Bergið í Garðabæ

💚Bergið opnar í Garðabæ💚

Bergið headspace hefur gert samstarfssamning við Garðabæ um að bjóða ungmennum í sveitarfélaginu upp á gjaldfrjálsa ráðgjöf og stuðning. Þjónustan hefst í september og verður veitt í samstarfi við Ungmennahúsið Torgið að Garðatorgi 1.

Með opnuninni í Garðabæ nær þjónusta Bergsins nú til allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu nema Seltjarnarness. Þetta er mikilvægur áfangi í þeirri vegferð Bergsins að færa þjónustuna nær ungu fólki og tryggja að aðgengi að stuðningi ráðist sem minnst af búsetu.

Bergið er lágþröskulda stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12–25 ára. Þjónustan er gjaldfrjáls, engin tilvísun er nauðsynleg og ungmenni geta leitað til Bergsins með hvað sem liggur þeim á hjarta – ekkert vandamál er of lítið eða of stórt.

Við erum ótrúlega ánægð með að bjóða Garðabæ velkominn í samstarfið. Markmið okkar hefur alltaf verið að ungt fólk geti fengið aðstoð þegar það þarf á henni að halda, án langrar biðar eða flókinna hindrana. Með Garðabæ erum við komin skrefinu nær því að þjónustan sé aðgengileg ungu fólki um allt höfuðborgarsvæðið.

Ungmenni sem vilja nýta þjónustuna geta skráð sig á bergid.is. Ráðgjafi hefur síðan samband og finnur með þeim tíma sem hentar.