Til baka í fréttirnar

07/05/2026

Aðalfundur Bergsins

Aðalfundur Bergsins headspace var haldinn 29. apríl 2026 og tekur ný stjórn nú til starfa. Ársskýrsla og ársreikningur félagsins eru aðgengileg á heimasíðunni undir „Um Bergið – ársskýrslur“.

Síðastliðið ár einkenndist af áframhaldandi vexti. Viðtölum fjölgaði um 13% og alls voru bókuð 4.617 viðtöl við 1.096 ungmenni úr 74 mismunandi póstnúmerum. Það sem skiptir ekki síður máli er að okkur tókst að halda biðlistum niðri þrátt fyrir aukna eftirspurn.

Við héldum áfram að færa þjónustuna nær ungu fólki með frekari uppbyggingu utan Reykjavíkur. Nýir þjónustupunktar í Mosfellsbæ og á Grenivík bættust við og, líkt og annars staðar, hefur verið fullbókað frá upphafi – sem undirstrikar skýra og brýna þörf fyrir þjónustuna.

Stuðningur sveitarfélaga sem njóta þjónustu Bergsins hefur þróast vel og hafa framlög þeirra aukist verulega, í sumum tilvikum tvöfaldast. Samningar við ríkið eru enn til skamms tíma í senn, en samtalið er áfram uppbyggilegt og við bindum miklar vonir við að ná fram lengri samningum innan ársins.

Stuðningur frá góðgerðarfélögum, fyrirtækjum og almenningi hefur aldrei verið meiri. Hann skiptir sköpum og endurspeglar aukna vitund um mikilvægi snemmtækrar og aðgengilegrar þjónustu fyrir ungt fólk.

Þrátt fyrir þennan mikla árangur er ljóst að við erum enn aðeins að mæta hluta af þörfinni. Metnaður okkar er að halda áfram að vaxa á ábyrgan hátt og tryggja að enn fleiri ungmenni fái þann stuðning sem þau þurfa – á sínum forsendum.